Rafmagn fór af Vestmannaeyjum í kvöld vegna bilunar hjá Landsneti. Dísilvélar eru keyrðar en þær anna ekki allri þörf bæjarbúa samkvæmt upplýsingum frá HS veitum. Ekki liggur fyrir hvenær rafmagni verður komið aftur á eins og vera ber.
Fram kemur í skilaboðum til Eyjamanna á Facebook-síðu HS veitna að unnið sé hörðum höndum að koma rafmagni aftur á sem fyrst.
„Eins og þið hafið mörg orðið vör við náðum við rafmagni á hluta eyjunnar í stutta stund en misstum það út aftur. Rafmagnsbilunin er uppi á landi hjá Landsneti en vonir eru um að spennirinn komist í lag sem fyrst.“