Viðvörun vegna vatnavár

Á mánudag og aðfaranótt þriðjudags er spáð mikilli úrkomu á vestanverðu landinu frá sunnanverðum Vestfjörðum um Snæfellsnes austur í Ölfus. Aðfaranótt miðvikudags fer önnur lægð yfir með mikilli úrkomu frá Snæfellsnesi að sunnanverðum Vatnajökli.

Aðfaranótt fimmtudags fram á föstudagsmorgun er svo búist við mikilli úrkomu á svæðinu frá Mýrdalsjökli að sunnanverðum Austfjörðum. Í slíku vatnsveðri má búast við vatnavöxtum í ám og lækjum þar sem veðrið gengur yfir svo fólki á ferð er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám. Fylgst verður með skriðuhættu í tengslum við þetta vatnsveður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert