Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á tveimur fjárkúgunarmálum stendur enn yfir, en annað málið beinist að forsætisráðherra. Tvær konur, sem eru systur, voru handteknar í Hafnarfirði lok maí í tengslum við málið. Ekki liggur fyrir hvenær rannsóknin muni ljúka en hún er langt komin, að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirlögregluþjóns.
Systurnar, Hlín Einarsdóttir og Malín Brand, voru handteknar í lok maí grunaðar um að hafa reynt kúga fé af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra. Hann fékk bréf sent heim til sín þar sem peninga var krafist í skiptum fyrir þagmælsku.
Nokkrum dögum síðar voru systurnar kærðar fyrir aðra fjárkúgun. Karlmaður kærði þær fyrir að hafa haft af sér 700 þúsund krónur. Systurnar sögðu þá peninga vera miskabætur vegna nauðgunar en maðurinn á að hafa nauðgað Hlín. Eftir að maðurinn kærði fjárkúgunina kærði Hlín hann fyrir nauðgun.
Rannsóknin hefur nú staðið yfir í rúma þrjá mánuði.