Undrast skipun ráðherra í nefndina

Hús hæstaréttar í miðborg Reykjavíkur.
Hús hæstaréttar í miðborg Reykjavíkur. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Við getum gert betur. Við eigum að gera betur,“ segir í ályktun tíu kvennasamtaka vegna skipan dómnefndar sem fjallar um hæfi umsækjenda um embætti hæstaréttardómara. 

Dóm­nefndin var skipuð fimm karl­mönn­um en engri konu. Nefnd­in komst að þeirri niður­stöðu að Karl Ax­els­son væri hæf­ast­ur af þeim Ing­veldi Ein­ars­dótt­ur og Davíð Þór Björg­vins­syni.

Aflið, Femínistafélag Íslands, Kvenfélagasamband Íslands, Kvennaathvarfið, Kvennaráðgjöfin, Kvenréttindafélag Íslands, Sólstafir, Stígamót, Tabú og W.O.M.E.N. in Iceland lýsa yfir undrun og mótmæla starfsháttum innanríkisráðherra að skipa aðeins karla í dómnefndina, segir í ályktun samtakanna.

„Við minnum á jafnréttislög þar sem skýrt er kveðið á um að hlutfall kynjanna skuli vera sem jafnast,“ segir í ályktuninni.

Svo segir:

„Við minnum einnig á að árið 2014 sendi Mannréttindastofnun Sameinuðu þjóðanna frá sér skýrslu þar sem bent var á að nauðsynlegt sé að auka þekkingu og skilning innan íslenska dómskerfisins á málefnum kynjanna. Sú ábending var gerð í tengslum við alvarlegar athugasemdir sem gerðar voru við meðferð kynferðisbrota og kynbundins ofbeldis í íslenska dómskerfinu. Í sömu skýrslu voru athugasemdir gerðar við fæð kvenna í íslenska dómskerfinu. Þegar skýrslan var skrifuð voru konur 2 af 12 dómurum Hæstaréttar. Núna er ein kona dómari af 9 dómurum Hæstaréttar.

Við bendum að lokum á kröfur norrænu kvennahreyfingarinnar, sem í júní 2014 fundaði á Nordiskt Forum í Svíþjóð. Í lok þeirrar ráðstefnu, sem 30.000 gestir sóttu, voru samþykktar 62 kröfur sem voru afhentar velferðarráðherrum Norðurlandanna. Ein þessara krafna var sú að opinberum aðilum verði skylt að hafa jafnréttissjónarmið að leiðarljósi í allri sinni starfsemi.

Við getum gert betur. Við eigum að gera betur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert