Gagnaveita Reykjavíkur hefur með birtingu á villandi samanburðarauglýsingum brotið gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. Fyrirtækinu er bönnuð birting auglýsinganna án þess að fullnægjandi samanburður sé gerður, að viðlögum sektum.
Þetta segir í ákvörðun Neytendastofu varðandi auglýsingar Gagnaveitunnar.
Fram kemur í tilkynningu, að Neytendastofu barst kvörtun frá Símanum vegna auglýsinga Gagnaveitunnar á ljósleiðara. Í auglýsingunum var vatnsglas og vatnsflaska meðal annars notuð sem myndlíking fyrir eiginleika ljósleiðara samanborið við aðra gagnaflutningstækni á markaði.
Að mati Neytendastofu var samlíkingu auglýsingarinnar ætlað að koma þeim skilaboðum á framfæri að önnur gagnaflutningstækni væri mun hægari en ljósleiðari. Auglýsingunni fylgdu hins vegar ekki neinar hlutlægar upplýsingar um mun á ljósleiðara og annarri tækni sem neytendur gætu nýtt til þess að taka upplýsta ákvörðun um viðskipti. Gátu neytendur því ekki staðreynt að samanburðurinn ætti rétt á sér.
Að mati Neytendastofu brutu auglýsingarnar því gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu og var Gagnaveitunni bönnuð birting þeirra án þess að fullnægjandi samanburður væri gerður að viðlögum sektum.