Hollenskt par var á miðvikudag úrskurðað í áframhaldandi gæsluvarðhald en þau voru handtekin með mikið magn fíkniefna í Norrænu þann 8. september sl.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Austurlandi var konan úrskurðuð í gæsluvarðhald til 21. október en karlmaðurinn til 3. nóvember.
Þau voru handtekin á Seyðisfirði eftir að mikið magn fíkniefna, E-töflur og MDMA duft ásamt lítilræði af amfetamíni, fannst í húsbíl sem þau voru á.
Þau eru á fimmtugsaldri. Rannsókn málsins heldur áfram en ekki er hægt að veita nánari upplýsingar um framvindu hennar, segir á vef lögreglunnar.