Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm í Marple-málinu svokallaða í dag. Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings, var dæmdur í sex mánaða fangelsi, Magnús Guðmundsson, fyrrum bankastjóri Kaupþings í Lúxemborg, var dæmdur í 18 mánaða fangelsi. Skúli Þorvaldsson var dæmdur í sex mánuði.
Guðný Arna Sveinsdóttir, fyrrum fjármálastjóri bankans var sýknuð af öllum ákærum.
Þá voru gerð upptæk til ríkissjóðs öll verðbréf, fjárfestingarsjóður og innstæða á tilteknum bankareikningi í Lúxemborg sem nam samtals rúmlega 6,7 milljónum evra, en yfirvöld í Lúxemborg gerðu verðmætin upptæk við rannsókn málsins.
Ítarleg umfjöllun mbl.is um málið
Kröfu ákæruvaldsins um upptöku tiltekinna eigna ákærða Skúla, sem yfirvöld í Lúxemborg gerðu upptæk var hafnað. Þá var vísað frá dómi skaðabótakröfu Kaupþings á hendur Guðnýju Örnu. Skaðabótaskylda Hreiðars Más og Skúla var hins vegar viðurkennd vegna þeirrar háttsemi sem sakfellt var fyrir í málinu.
Hinir sakfelldur í málinu þurfa að greiða verjendum sínum háar fjárhæðir í málsvarnarlaun. Þannig þarf Hreiðar Már að greiða verjanda sínum tæpar 22 milljónir fyrir störf hans og kostnað upp á rúmar 1,7 milljónir. Magnús greiðir verjanda sínum ríflega 11 milljónir, Skúli greiðir rúmar 16 og hálfa milljón og kostnað upp á 800.000 þúsund krónur, og málsvarnarlaun skipaðs verjanda á rannsóknarstigi málsins, 7,7 milljónir.
Ríkissjóður þarf hins vegar að greiðar málsvarnarlaun verjanda Guðnýjar Örnu, ríflega 18 milljónir.
Í málinu voru Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrum forstjóri í Kaupþingi og Guðný Arna Sveinsdóttir, fyrrum fjármálastjóri bankans, ákærð fyrir fjárdrátt og umboðssvik. Magnús Guðmundsson, fyrrum forstjóri Kaupþings í Lúxemborg var aftur á móti ákærður fyrir hlutdeild í sömu brotum, og fjárfestirinn Skúli Þorvaldsson ákærður fyrir hylmingu og peningaþvott. Allir verjendur, nema verjandi Marple, voru viðstaddir dómsuppkvaðninguna, en enginn ákærðu mættu.
Allir ákærðu í málinu kröfðust sýknu í málinu. Aðalmeðferð í málinu tók heila viku og lauk fyrir sléttum fjórum vikum.
Í málinu kröfðust verjendur sakborninga þess meðal annars að Ásgeir Brynjar Torfason, meðdómari í málinu, væri látinn víkja sæti sökum vanhæfis, en ekki var fallist á þá kröfu.
Ákæruefnið er í mjög stuttu máli tvær millifærslur frá Kaupþingi til Kaupþings í Lúxemborg sem fóru áfram til félagsins Marple í Lúxemborg á árunum 2007 og 2008, þar sem saksóknari telur að um fjárdrátt sé að ræða. Heildarupphæð þeirra er rúmlega 6 milljarðar. Þá segir saksóknari að viðskipti með skuldabréf í Kaupþingi hafi skilað Marple ólöglega um 2 milljörðum og ákærir þar fyrir umboðssvik
Frétt mbl.is: Meðdómarinn ekki vanhæfur