Andlát: Þór Vilhjálmsson

Þór Vilhjálmsson.
Þór Vilhjálmsson.

Þór Heimir Vilhjálmsson, fv. dómari við Hæstarétt, Mannréttindadómstól Evrópu og EFTA-dómstólinn og prófessor við lagadeild HÍ, lést á Landspítalanum 20. október sl., 85 ára að aldri.

Þór fæddist 9. júní 1930 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Vilhjálmur Þ. Gíslason, skólastjóri og útvarpsstjóri, og Ingileif (Inga) Oddný Árnadóttir, húsfreyja í Reykjavík.

Þór lauk stúdentsprófi frá MR 1949 og nam hagfræði við St. Andrews-háskólann veturinn eftir. Hann lauk lagaprófi frá HÍ 1957 og stundaði framhaldsnám í ríkisrétti í New York og Kaupmannahöfn.

Störf Þórs voru einkum kennsla og dómarastörf. Hann var blaðamaður við Morgunblaðið og upplýsingafulltrúi Evrópuráðsins í nokkur ár.

Þór varð fulltrúi hjá borgardómaranum í Reykjavík 1960 en síðar skipaður borgardómari og gegndi því starfi til 1967. Fram að því hafði hann verið stundakennari og lektor. Hann var skipaður prófessor við lagadeild HÍ 1967 og hæstaréttardómari 1976. Þór varð dómari við Mannréttindadómstól Evrópu 1971 og var það til 1998. Hann var dómari við EFTA-dómstólinn frá 1994. Þór lét af störfum í árslok 2002.

Þór gegndi margvíslegum félags- og trúnaðarstörfum. Hann var m.a. formaður Félags háskólakennara, byggingarnefndar Lögbergs og Lögfræðingafélags Íslands. Þór var í sendinefnd Íslands á fundum hafsbotnsnefndar Sameinuðu þjóðanna á áttunda áratug síðustu aldar og á hafréttarráðstefnum SÞ.

Þór tók þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins og var einn af forgöngumönnum undirskriftasöfnunarinnar Varins lands 1974.

Eftir Þór liggja kennslubækur og fjölmargar greinar og ritgerðir um lögfræði, lagakennslu, mannréttindi og fleira. Hann var ritstjóri Tímarits lögfræðinga 1973-1983.

Þór var kvæntur Ragnhildi Helgadóttur, fyrrverandi alþingismanni og ráðherra, og lifir hún mann sinn. Þau eiga fjögur börn, Helga, Ingu, Kristínu og Þórunni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert