Sigrún Magnúsdóttir, settur forsætisráðherra, hefur fallist á tillögu Minjastofnunar Íslands frá 24. september sl. um að friðlýsa í heild sinni hafnargarð sem þverar lóðina Austurbakka 2 í Reykjavík.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.
Í tilkynningunni segir að Sigrún hafi friðlýst mannvirkið í samræmi við tillögu Minjastofnunar Íslands, en það njóti þegar friðun á grundvelli 4. mgr. 3. gr. laga um menningarminjar nr. 80/2012.
„Forsætisráðuneytið mun á næstunni kalla saman hagsmunaaðila málsins til að kanna hvort ásættanleg lausn finnst í málinu, sem tryggir vernd þessara merku menningarminja en stuðlar jafnframt að því að byggingaráform á lóðinni nái fram að ganga í einhverri mynd.
Á umræddri lóð eru tvennar minjar; annars vegar svokallað bólverk í suðausturenda lóðarinnar hlaðið árið 1876 og hins vegar umræddur hafnargarður hlaðinn árið 1913. Hvorar tveggja minjarnar eru eldri en 100 ára og eru því friðaðar samkvæmt lögum. Enginn ágreiningur er um aldur bólverksins og því ekki þörf á sérstakri friðlýsingu vegna þess.
Hafnargarðurinn var fluttur fram um sjö metra árið 1928. Sú tilhliðrun ein og sér er ekki talin breyta aldri garðsins, enda er um að ræða sama mannvirki,“ segir í tilkynningunni.
Frétt mbl.is: Minjastofnun vill friðlýsa hafnargarðinn