„Allir þeir sem gefa kost á sér til einhverra starfa, hvort sem það er í stjórnmálaflokki eða öðrum félagasamtökum, geta aldrei gengið út frá því vísu að þeir séu hinir einu sem það gera,“ segir Björn Valur Gíslason, varaformaður Vinstri grænna, í samtali við mbl.is, en landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs fer nú fram á Selfossi um helgina.
Talsverð umræða hefur átt sér stað að undanförnu um hugsanlegt framboð Daníels Hauks Arnarssonar, starfsmanns Vinstri grænna, í embætti varaformanns flokksins. Hann hefur hins vegar ákveðið að gefa ekki kost á sér.
Björn Valur segir það bæði eðlilegt og jákvætt að fólk sýni embættinu áhuga - slíkt sé merki um þá grósku sem finna má í starfi hreyfingarinnar.
„Því er þó ekki að leyna að þetta ber að með fremur undarlegum hætti, þ.e.a.s. með undirskriftarlista,“ segir Björn Valur, en send var út áskorun á Daníel Hauk að bjóða sig fram fram til embættis varaformanns og var hún undirrituð af 74 áhrifamönnum innan flokksins.
„Því eigum við ekki að venjast og kom þessi aðdragangi mörgum á óvart,“ segir hann.
Spurður hvort hann eigi von á mótframboði frá einhverjum öðrum á fundinum kveður Björn Valur nei við. „Ég hef a.m.k. ekki heyrt af því.“
Fyrri fréttir mbl.is:
Munu gegna „sögulegu hlutverki“
Forgangsraða í þágu hinna ríku