Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, íhugaði eftir fjölmargar áskoranir að bjóða sig fram gegn Ólöfu Nordal í embætti varaformanns. Hún bað um að fá að koma upp í pontu á landsfundinum og skýrði frá þessu.
Unnur sagði niðurstöðuna hins vegar hafa verið að gefa ekki kost á sér þar sem Ólöf væri að berjast fyrir sömu hugsjónum og hún sjálf.
Frétt mbl.is: Vilja Unni Brá sem varaformann
Ólöf er ein í framboði til varaformanns en hún gegndi embættinu á árunum 2010 til 2013, og Hanna Birna Kristjánsdóttir, núverandi varaformaður, hefur gegnt embættinu síðan þá.