Morgunhanar og aðrir sem þurftu að vakna fyrir sólarupprás í morgun tóku vafalítið eftir því að það snjóaði á höfuðborgarsvæðinu um sjöleytið í morgun. Þetta er fyrsta snjókoman á höfuðborgarsvæðinu þennan veturinn, en fyrsti vetrardagur var í gær.
Veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands sagði allt útlit fyrir að það héldi áfram að snjóa í dag, þó svo að ekki væri um mikla snjókomu að ræða. Snjórinn sem fellur á að öllum líkindum ekki langt líf fyrir höndum, því útlit er fyrir hlýnandi veður og rigningu í miðri vikunni, þó svo að búast megi við nokkru frosti á höfuðborgarsvæðinu í nótt.
Veðurhorfur á landinu næsta sólarhringinn:
Norðaustan 8-13 m/s, en austan 13-18 við S-ströndina. Snjókoma eða él sunnan- og vestanlands, en hægari og úrkomuminna norðaustantil. Lægir og léttir víða til í kvöld og nótt. Norðaustlæg eða breytileg átt 3-8 á morgun og yfirleitt léttskýjað. Norðaustan 5-10 og stöku él austantil fram að hádegi, en léttir síðan einnig til þar. Frost 0 til 8 stig, kaldast norðaustantil, en kringum frostmark sunnantil.