Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, hitti David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, í dag og bar íslenska matargerð meðal annars á góma. Þá voru hefðbundnari mál einnig rædd, eins og orkumál og samvinna landanna á ýmsum sviðum. Frá þessu segir Bjarni á Facebook-síðu sinni nú í kvöld.
Bjarni segir að Cameron hafi verið mjög hrifinn af íslenskri matargerð og að fundur þeirra hafi verið góður. Segist hann auk þess hafa fært Cameron bókina Sögustaði eftir Einar Fal Ingólfsson, ljósmyndara, sem Bjarni segist halda mikið upp á.
Í bókinni eru ljósmyndaverk sem taka hliðsjón af vatnslitamyndum, teikningum og ljósmyndum sem breski myndlistarmaðurinn og fornfræðingurinn William Gershom Collingwood málaði og tók af stöðum sem koma fyrir í Íslendingasögunum á tíu vikna ferðalagi um Ísland sumarið 1897.
Við David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, áttum góðan fund í dag, þar sem við ræddum allt frá íslenskri matargerð,...
Posted by Bjarni Benediktsson on Thursday, 29 October 2015