Mikil ísing í beygjunni

Frá Eskifirði.
Frá Eskifirði. Sigurður Bogi Sævarsson

Íslendingar á leið til vinnu voru í báðum bílunum sem lentu í árekstrinum á Eskifirði laust fyrir klukkan átta í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Eskifirði voru þrír fluttir á sjúkrahúsið í Neskaupstað eftir áreksturinn með nokkra áverka. 

Hafði fólkið í báðum bílum verið að keyra á blautu malbiki. Í beygjunni þar sem áreksturinn varð hafi hins vegar verið glæra hálka samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Þrír voru í annarri bifreiðinni þegar áreksturinn varð en tveir í hinni. Ekki hafa fengist frekari upplýsingar um líðan þeirra þriggja sem fluttir voru á sjúkrahús, en tveir voru fluttir til skoðunar á Heilsu­gæslu­stöðina á Eskif­irði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert