Um hálftíu hófst dæling sjávar úr sanddælingarskipinu Perlunni sem sökk í Gömlu höfninni við Ægisgarð að morgni mánudags. Nú rétt um tíu þurfti að stöðva dælurnar en leki kom upp í skipinu. Kafari var sendur að skipinu sem vinnur nú að því að þétta það.
Einhver töf hefur orðið á verkinu en upphaflega var stefnt að því að hefja dælingu klukkan fimm í dag. Áætlað sé að það taki um sex klukkustundir að dæla sjó úr skipinu.
UPPFÆRT kl 23:14
Aðgerðum við Ægisgarð hefur nú verið hætt og verður staðan tekin í fyrramálið.