Klifraði upp á svalir Alþingishússins

Frá aðgerðum slökkviliðs og lögreglu við Alþingishúsið í nótt.
Frá aðgerðum slökkviliðs og lögreglu við Alþingishúsið í nótt. Af Twitter

Nóttin var erilsöm hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins en ekki var um stórvægleg verkefni að ræða. Var þrisvar tilkynnt um vatnstjón vegna vatnsleka á höfuðborgarsvæðinu en samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra voru það ekki miklir lekar. Um klukkan tvö var kallaður út körfubíll til þess að ná manni sem hafði klifrað upp á svalir Alþingishússins. Einnig var sagt frá málinu í #löggutísti

Á sjöunda tímanum var maður fluttur á slysadeild eftir að hafa ekið bifreið sinni á ljósastaur í Árbænum. Ekki liggur fyrir hvort hann sé alvarlega slasaður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka