Öll tilboð sem bárust í tilboð í umsjón og eftirlit með framkvæmdum við byggingu sjúkrahótels voru undir kostnaðaráætlun, en tilboðin voru opnuð hjá Ríkiskaupum í dag. Kostnaðaráætlun verksins hljóðar upp á 37,5 milljónir, en lægsta tilboðið var frá Verkís hf, eða 27,5 milljónir kr.
Fram kemur í tilkynningu frá félaginu Nýjum Landspítala, að bygging sjúkrahótelsins sé hluti af fyrsta áfanga byggingar nýs Landspítala við Hringbraut. Um er að ræða eftirlit með byggingu sjúkrahótels og við framkvæmdir á lóð.
Fimm tilboð bárust í eftirlitið frá eftirtöldum aðilum:
Í framhaldinu verður farið yfir tilboðin áður en endanleg niðurstaða fæst.
Á morgun mun Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra skrifa undir samning við LNS Saga vegna byggingar sjúkrahótels á kl. 11. Ráðherra mun einnig taka fyrstu skóflustungu að sjúkrahótelinu á opnu svæði á milli Barnaspítala og kvennadeildar við Landspítalann við Hringbraut.
Samningurinn er milli NLS Saga, sem var lægstbjóðandi í verkið, og hlutafélagsins Nýr Landspítali ohf. Áætluð heildarstærð sjúkrahótels er um 4.000 fermetrar.