Búið er að rýma Hagahverfi á Selfossi og vísa fólki á fjöldahjálparstöð í Vallaskóla vegna stórbruna sem varð á Gagnheiði þar sem húsnæði Plastiðjunnar er til húsa. Slökkviliðið reynir nú að halda eldinum í skefjum, en vonast er til þess að eldurinn teygi sig ekki í nærliggjandi hús. Samkvæmt Pétur Péturssyni, starfandi slökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Árnessýslu, er eldurinn kominn á hnignunarstig, en enn sé þó mikil hætta á ferðum.
Eftirfarandi myndskeið tók Kristján Bergsteinsson á vettvangi.