Tveir starfsmenn tryggingafélagsins Sjóvár eru nú við grunnskoðun á verksmiðju Plastiðjunnar á Selfossi sem brann í nótt áður en fundað verður með eigendum hennar. Að sögn blaðamanns mbl.is á vettvangi er enn mikil plastlykt á svæðinu og hefur starfsmönnum leikskóla í grenndinni verið ráðlagt að halda börnunum innandyra.
Reykur stígur enn upp frá verksmiðju Plastiðjunnar við Gagnheiði 17 á Selfossi eftir brunann í nótt og er mikil plastlykt í lofti. Blaðamaður mbl.is hefur eftir Pétri Péturssyni, slökkviliðsstjóra Brunavarna Árnesinga, að engin hætta sé á ferðum vegna lyktarinnar.
Bæjarstarfsmenn eru að störfum við vettvang en greinilegt er að bæjarbúar hafa töluverðan áhuga á að berja brunarústirnar augum því þó nokkur umferð hefur verið fram hjá húsinu í morgun.
Fyrr í morgun sagði Pétur í samtali við mbl.is að húsnæðið væri gerónýtt eftir eldsvoðann. Axel Óli Ægisson, framkvæmdastjóri Plastiðjunnar, sagði jafnframt að „altjón“ hafi orðið á fyrirtækinu.