Fjárkúgunarmál sem sneri að Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra er nú í skoðun hjá embætti ríkissaksóknara og hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort að ákært verði í málinu. Málið var í rannsókn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í rúma fimm mánuði en það var sent til ríkissaksóknara 9. nóvember síðastliðinn.
Systurnar Hlín Einarsdóttir og Malín Brand voru handteknar í lok maí, grunaðar um að hafa sent bréf í pósti til forsætisráðherra og krafist þess að hann greiddi þeim tiltekna fjárupphæð. Fjármunina átti að skilja eftir á ákveðnum stað sunnan Vallahverfisins í Hafnarfirði. Þar handtók lögregla konurnar.
Í samtali við mbl.is sagðist Malín hvorki hafa komið nálægt bréfinu né sendingu þess. Sagðist hún aðeins hafa blandast inn í málið vegna systur sinnar. Sagði hún aðkomu sína að málinu hafa í raun aðeins verið þá að hafa verið með systur sinni í bíl. Hafi hún að hluta vitað hvað til stæði en talið að enginn myndi taka málið alvarlega þar sem augljóst væri að veik manneskja ætti í hlut.
Nokkrum dögum síðar voru systurnar kærðar fyrir aðra fjárkúgun. Karlmaður kærði þær fyrir að hafa haft af sér 700 þúsund krónur. Systurnar sögðu þá peninga vera miskabætur vegna nauðgunar en maðurinn átti að hafa nauðgað Hlín. Eftir að maðurinn kærði fjárkúgunina kærði Hlín hann fyrir nauðgun. Það mál er í rannsókn að sögn lögreglu.