Borgarbúar eru beðnir um að taka fram skóflu og moka frá sorpílátum og greiða aðgengi að þeim með því að moka leið fyrir starfsmenn sorphirðu Reykjavíkurborgar. Kemur þetta fram í tilkynningu frá borginni.
Mjög hefur snjóað í höfuðborginni fyrir og um helgina og eru götur og gangstígar því margir hverjir erfiðir yfirferðar. Þannig mældist t.a.m. snjódýpt í Reykjavík 32 sentímetrar.
Það getur því verið erfitt fyrir sorphirðuna að halda áætlun nema íbúar vinni með henni. „Borgarbúar eru vinsamlegast beðnir að kanna aðstæður við sorpgeymslur. Á sumum stöðum þarf að moka frá sorpgeymslum og hálkuverja, á öðrum stöðum þarf að losa tunnur sem eru ef til vill bundnar niður,“ segir í áðurnefndri tilkynningu.
„Starfsfólk sorphirðunnar hjá Reykjavíkurborg þakkar kærlega öllum sem sjá sér fært að sinna þessu verkefni. Það munar miklu að íbúar hafi aðkomuna sem besta fyrir sorphirðufólkið.“