Greina meðferð nauðgunarmála

Mikið hefur verið rætt um meðferð kynferðisbrotamála hér á landi …
Mikið hefur verið rætt um meðferð kynferðisbrotamála hér á landi að undanförnu. mbl.is/Árni Sæberg

Innanríkisráðherra hefur ákveðið að setja af stað vinnu við greiningu á því sem betur má fara við meðferð nauðgunarmála. Gert er ráð fyrir að greiningin taki til meðferðar nauðgunarmála í réttarvörslukerfinu.

Þetta kemur fram í frétt á vef ráðuneytisins. 

Gert er ráð fyrir að samráðshópurinn verði skipaður þeim sem koma að umræddum málum, þ.e. fulltrúum ríkissaksóknara, héraðssaksóknara, Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dómstólaráðs, Lögmannafélags Íslands og Landspítala háskólasjúkrahúss vegna neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis. Þá verður þingflokkum gefinn kostur á að tilnefna tengiliði vegna verkefnisins. Í frétt ráðuneytisins segir að allir þingflokkar hafi sýnt málinu áhuga. 

„Hlutverk samráðshópsins er að fara ítarlega yfir meðferð nauðgunarmála í réttarvörslukerfinu og setja fram tillögur til umbóta og taka afstöðu til tillagna sem þegar hafa verið settar fram. Fyrir liggja ýmis gögn um málið, meðal annars skýrsla Hildar Fjólu Antonsdóttur, Viðhorf fagaðila til meðferðar nauðgunarmála innan réttarvörslukerfisins og tillögur að úrbótum, sem unnin var á árinu 2014 í samvinnu við innanríkisráðuneytið.

Vonast er til að niðurstöður og úrbótatillögur verði kannaðar gaumgæfilega og eftir atvikum þróaðar áfram og nýttar í því skyni að tryggja réttaröryggi borgaranna, efla vitundarvakningu og samstarf stjórnvalda,“ segir í fréttinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka