Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar, segir að meint vanhæfi Marðar Árnasonar til stjórnarsetu í stjórn RÚV hafi fyrst komið til skoðunar hjá Fjölmiðlanefnd í síðustu viku.
„Við fórum að skoða þetta í síðustu viku. Í kjölfarið sendum við póst í morgun þar sem við bentum á þetta og beindum því til ráðuneytisins að skoða það hvort stjórnarsetan væri í samræmi við lögin,“ segir Elfa og vísar þar til 9. gr. laga um Ríkisútvarpið þar sem segir að kjörnir fulltrúar til Alþingis og sveitarstjórna séu ekki kjörgengir í stjórn Ríkisútvarpsins.
Hún segir virðast sem svo að stjórnarseta Marðar hafi „dottið á milli“ og þar sem Fjölmiðlanefnd á að hafa almenna eftirlitsskyldu með Ríkisútvarpinu hafi Fjölmiðlanefnd komið vinsamlegri ábendingu til mennta- og menningarmálaráðuneytisins þess efnis að þeir sem hafi verið kjörnir til Alþingis eða sveitarstjórnar megi ekki sitja í stjórn ríkisútvarpsins.
Stjórnarfundur RÚV hefst nú um klukkan 16 og staðfesti Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður RÚV, að farið yrði yfir skipan Marðar á fundinum.