Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur frá því klukkan rúmlega fimm í dag freistað þess að komast til Neskaupstaðar til að sækja nýbura sem koma þarf undir læknishendur í Reykjavík.
Þyrlan lenti á Höfn í Hornafirði um klukkan 19.15 og tók eldsneyti þar. Hélt þyrlan svo aftur af stað og hélt út fyrir annes á Austfjörðum. Upp úr klukkan 21.00 í kvöld var þyrlan komin í mynni Norðfjarðar og hélt inn fjörðinn. Reynt var að lenda á flugvellinum í Neskaupstað en varð þyrlan frá að hverfa vegna sviptivinda sem voru allt að 70 hnútar sem eru um 35 metrar á sekúndu.
Hélt þyrlan þá út fyrir annes aftur og freistaði þess að lenda á Stöðvarfirði en þar voru veðuraðstæður einnig afar slæmar. Að lokum gat þyrlan lent á Breiðdalsvík og var hún lent þar um klukkan 22.00. Þar bíður þyrlan átekta meðan þess er freistað að flytja barnið landleiðina til Breiðdalsvíkur. Verður það þá flutt með þyrlunni til Reykjavíkur.
Eins og er er mikill stormur á Austfjörðum og meðfram suðurströndinni sem gerir aðstæður allar mun erfiðari, samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni.