„Hér er mikið búið að ganga á í nótt. Veður sem ekki hefur sést í manna minnum,“ segir Sævar Guðjónsson á Mjóeyri í Eskifirði. Bryggjur sem þar hafa staðið í rúm hundrað ár eru nú farnar.
Frétt mbl.is: Stjörnuvitlaust veður á Eskifirði
„Þó hafa þær verið endurnýjaðar reglulega. Þá eru enn aðrar bryggjur skemmdar,“ segir Sævar.
Þar sem hann býr hefur sjórinn grafið tvo metra úr eyrinni. „En sem betur fer voru engin slys á fólki. Það voru hér ferðamenn inni í húsi og það væsti svo sem ekkert um þá. En auðvitað líst mönnum ekkert á þetta, þegar aldan kemur óbrotin heim að húsi.“
Sævar segir engin fordæmi vera fyrir ofsaveðri sem þessu. „Það hefur aldrei verið svona veður og heldur ekki svona há sjávarstaða. Ekkert í líkingu við þetta.“
Jens Garðar Helgason formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð segir í samtali við mbl.is að malbik hafi flest ofan af veginum í Eskifirði.
„Útbærinn er virkilega illa farinn. Það eru farnar tvær gamlar bryggjur og sér mjög á Mjóeyrinni. Þar er gamalt leiði, frá síðustu aftökunni á Austurlandi árið 1786, það er nánast komið í sjó niður. Skemmdir eru víða og búið er að loka aðalgötunni að hluta, þar sem malbikið flettist upp.“
Spurður hvað taki við núna segir Jens að bíða þurfi þess að veðrið taki að lægja áður en hægt verður að gera nokkuð.
„Við þurfum að setjast niður og meta þetta. Við munum þá mynda aðgerðaáætlun um hvernig eigi að klára að grjótverja bæinn og sjá til þess að þetta gerist ekki aftur með þessum hætti. Þá þarf að endurbyggja bryggjur og fleira.“
Vegurinn inn í bæinn á Fáskrúðsfirði er illa farinn eftir veðurofsann sem gengið hefur þar yfir í nótt og í morgun. Fréttaritari mbl.is á staðnum, Albert Kemp, segir að 600 metra kafli sé einna verstur.
„Sá kafli er ekkert nema grjót,“ segir Albert og bætir við að ein gatan, sjávargata, sé nánast horfin. „Það er bálhvasst og búið að vera snarvitlaust síðan í gærkvöldi. Nú er hann að snúa sér í sunnanátt en hefur ekki gengið mikið niður.“
Albert segir enn fremur að lyftari hefur verið notaður til að halda þaki niðri á einu húsi í bænum.