„Það er snælduvitlaust veður og það er ekki að lagast. Það bætir í raun í og hér koma hviður eins hleypt sé af fallbyssuskotum,“ segir Ólafur Atli Sigurðsson formaður björgunarsveitarinnar Geisla á Fáskrúðsfirði í samtali við mbl.is.
Há sjávarstaða er á Fáskrúðsfirði og vakta björgunarsveitarmenn höfnina. Þá hafa fiskkör og trampólín fokið í bænum. Tjón hefur orðið á gatnakerfi bæjarins og á hafnargarðinum að sögn Ólafs.
„Grjót var að þeytast úr hafnargarðinum en annars höfum við sloppið án stóráfalla. Þetta hafa mestmegnis verið minniháttar atvik sem við höfum þurft að sinna.“