Ránsfengurinn fundinn

Ránsfengurinn er fundinn.
Ránsfengurinn er fundinn. Samsett mynd

Ránsfengurinn úr vopnaða ráninu í útibúi Landsbankans í Borgartúni í gær fannst í hádeginu í dag í kjölfar leitar lögreglu í Öskjuhlíð. Karlmaður um tvítugt hefur játað aðild sína að ráninu en hann gaf sig sjálfur fram við lögreglu í gær eftir að lýst var eftir honum. Annar maður á sama aldri var handtekinn í nótt grunaður um aðild að ráninu.

Líkt og fram hefur komið á mbl.is hafa menn­irn­ir tveir báðir áður komið við sögu hjá lög­reglu. Yf­ir­heyrsl­ur standa nú yfir, en rann­sókn máls­ins er sögð miða vel. Bú­ast má við að lög­regl­an leggi fram gæslu­v­arðhalds­kröfu síðar í dag.

Til­kynn­ing um ránið barst kl. 13.22 í gær, en ræn­ingjarn­ir komust und­an með óveru­lega fjár­muni. Strax í kjöl­farið hófst um­fangs­mik­il leit lög­reglu að mönn­un­um. Bíll­inn, sem var notaður við ránið, fannst í Hlíðunum í Reykja­vík, en hann reynd­ist stol­inn. Síðar fannst hníf­ur og eft­ir­lík­ing af skamm­byssu sem lög­regla tel­ur að hafi verið notað við ránið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert