Jarðskjálfti sem var þrjú stig mældist í norðanverðri Bárðarbunguöskjunni klukkan 1:24 í nótt. Skjálftinn var á svipuðum slóðum og skjálftar sem riðu yfir í fyrrinótt.
Skjálftarnir í fyrrinótt voru 3,2 og 3,3 stig og samkvæmt gögnum Veðurstofu Íslands voru þeir um hálf tvö leytið aðfararnótt mánudags.