Varðskipið Þór er nú á leið að flutningaskipinu Hoffell sem er vélarvana djúpt suður af Íslandi. Gengur ferðin vel og er ráðgert að varðskipið verði komið að flutningaskipinu um hádegi á morgun og dragi skipið til Reykjavíkur.
Greint var frá því á vef Samskipa í gær að Hoffell hafi orðið vélarvana 160 sjómílur suðvestur af Færeyjum á leið til Íslands. Helgafell, skip Samskipa, er við Hoffellið og í samskiptum við áhöfn þess.
Samskip Hoffell er 5.500 tonna gámaskip. Í áhöfn þess eru 13 manns og amar ekkert að þeim.