Gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem eru grunaðir um að hafa framið vopnað rán í útibúi Landsbankans 30. desember síðastliðinn var fyrr í vikunni framlengt til 8. febrúar næstkomandi. Þetta staðfestir Árni Þór Sigmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í samtali við mbl.is. Að sögn Árna er rannsókn málsins langt komin og liggja játningar fyrir.
Lögreglu barst tilkynning um ránið klukkan 13:22 en mennirnir komust undan með óverulega fjármuni sem fundust næsta dag. Lögreglan hóf í kjölfarið umfangsmikla leit að mönnunum, m.a. í Öskjuhlíð. Annar maðurinn var handtekinn aðfaranótt 31. desember en hinn gaf sig fram við lögreglu eftir að lýst var eftir honum.
Mennirnir tveir hafa báðir áður komið við sögu hjá lögreglu.