Fjöruverðlaunin afhent í Höfða

Frá vinstri: Þórunn Sigurðardóttir, Hildur Knútsdóttir og Halldóra K. Thoroddsen.
Frá vinstri: Þórunn Sigurðardóttir, Hildur Knútsdóttir og Halldóra K. Thoroddsen. mbl.is/Árni Sæberg

Fjöru­verðlaun­in, bók­mennta­verðlaun kvenna, voru veitt við hátíðlega at­höfn í Höfða í dag. Hall­dóra K. Thorodd­sen hlaut verðlaun í flokki fag­ur­bók­mennta, Hild­ur Knúts­dótt­ir í flokki barna- og ung­linga­bók­mennta og Þór­unn Sig­urðardótt­ir í flokki fræðibóka og rita al­menns eðlis. 

Þetta í tí­unda skipti sem verðlaun­in eru veitt og í annað sinn síðan borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur, bók­mennta­borg­ar UNESCO, gerðist vernd­ari verðlaun­anna og bauð Dag­ur B. Eggerts­son gesti vel­komna og af­henti verðlauna­höf­um blóm.

Venju sam­kvæmt fengu verðlauna­haf­ar kera­mik-egg eft­ir lista­kon­una Koggu og frú Vig­dís Finn­boga­dótt­ir steig á svið og af­henti verðlauna­höf­um gjafa­bréf fyr­ir dvöl á Kolkuósi í Skagaf­irði.

Í flokki fag­ur­bók­mennta:
Tvö­falt gler eft­ir Hall­dóru K. Thorodd­sen

Í flokki barna- og ung­linga­bók­mennta:
Vetr­ar­frí eft­ir Hildi Knúts­dótt­ur

Í flokki fræðibóka og rita al­menns eðlis:
Heiður og hugg­un – Erfiljóð, harm­ljóð og hugg­un­ar­kvæði á 17. öld eft­ir Þór­unni Sig­urðardótt­ur

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert
Loka