Kínversk kona, 26 ára gömul, er látin eftir köfunarslys í Silfru á Þingvöllum. Konan hafði verið ásamt manni sínum á vegum ferðaþjónustufyrirtækis að kafa í gjánni. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Suðurlandi sökk konan niður á um 30 metra dýpi og var henni eftir nokkurn tíma komið upp á yfirborðið meðvitundarlausri.
Lögreglu barst tilkynning um slysið klukkan 12:42 síðastliðinn þriðjudag og var kallað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslu Íslands sem flutti konuna á Reykjavíkurflugvöll þar sem sjúkrabíll beið og flutti hana á gjörgæsludeild Landspítalans. Þar var hún úrskurðuð látin í dag.
Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurlandi, segir hluta köfunarbúnaðar konunnar hafa verið eftir á botni Silfru og komu sérsveitarmenn frá ríkislögreglustjóra, sérfræðingar Landhelgisgæslu og köfunarsveit slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins á staðinn til að kafa eftir honum.
Að sögn Þorgríms Óla hefur búnaðurinn nú verið fluttur til rannsóknar hjá tæknideild lögreglunnar.
Á þessari stundu er ekki vitað hvað olli slysinu. „Hún sökk niður á 30 metra dýpi, en atvikið átti sér upphaflega stað rétt undir vatnsyfirborðinu. Hún virðist lenda í einhverjum straumi,“ segir Þorgrímur Óli í samtali við mbl.is en talið er að konan hafi verið í kafi í um 10 mínútur áður en henni var komið upp á yfirborðið.
Ekki er vitað hvort konan hafi haft aðgengi að súrefni allan þann tíma sem hún var í kafi, það er hluti rannsóknar lögreglu. „Hún var með allt á sér sem þurfti en við vitum ekki hvort einhver bilun varð í búnaði,“ segir Þorgrímur Óli.
Sendiráð Kína á Íslandi hefur verið í nánu sambandi við mann hinnar látnu og fjölskyldu hennar sem búsett er í Kína. Sjálf var konan búsett í Bandaríkjunum ásamt manni sínum.
Rannsókn slyssins er nú í fullum gangi.
Köfunarslys í Silfru hafa verið algeng síðustu ár og oft hefur mátt litlu muna, stundum hársbreidd á milli lífs og dauða. Er þetta þriðja banaslysið þar frá árinu 2010, en í desember 2012 lést þar Íslendingur og árið 2010 lést erlendur ferðamaður.
Fyrri fréttir mbl.is:
Hafa ráðið við fjöldann hingað til