Lagði fram fyrirspurn á alla ráðherra

Allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar fengu fyrirspurn frá Bjarkey.
Allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar fengu fyrirspurn frá Bjarkey. mbl.is/Ómar

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingkona VG hefur lagt fram fyrirspurnir til allra ráðherra ríkisstjórnarinnar um nefndir, starfshópa og verkefnisstjórnir. Bjarkey spyr m.a. hvaða nefndir, starfshópa og verkefnisstjórnir hver ráðherra hefur skipað frá upphafi kjörtímabilsins, hvert var tilefni skipunar og hver eru meginviðfangsefni þeirra. Í fyrirspurnunum er óskað er eftir að aðgreindar verði þær skipanir sem gerðar eru samkvæmt lögum og þær sem gerðar eru að frumkvæði ráðherra.  Þá er spurt hversu fjölmenn hver nefnd, starfshópur og verkefnisstjórn er og hversu marga einstaklingar hver ráðherra hafi skipað. Einnig er spurt um hlutfall kvenna og karla í þeim.

Jafnframt er spurt um hversu margar þessara nefnda, starfshópa og verkefnisstjórna hafa lokið störfum og hversu hátt er hlutfall þeirra af heildarfjölda nefnda, starfshópa og verkefnisstjórna skipuðum af ráðherra og hversu hátt hlutfall einstaklinga, sem ráðherra hefur skipað í nefndir, starfshópa og verkefnisstjórnir frá upphafi kjörtímabilsins, er búsett á höfuð­borgar­svæðinu.

Þá spyr Bjarkey hver hafi verið kostnaður við störf hverrar nefndar, starfshóps eða verkefnisstjórnar, hvernig sundurliðast hann og hver er heildarkostn­aður vegna nefnda, starfshópa og verkefnisstjórna sem hver ráðherra hefur skipað frá upphafi kjörtímabils.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert