Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs 365, hefur látið af störfum.
Starf framkvæmdastjóra var auglýst um helgina en Guðmunda Ósk tók við stöðunni í september á síðasta ári.
Í Morgunblaðinu í dag segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri 365, Guðmundu Ósk hafa viljað snúa aftur í fjármálageirann og því leiti fyrirtækið sér nú að nýjum framkvæmdastjóra fjármálasviðs.