„Komið inn að beini í skerðingu“

Leikskólabörn. Mynd úr safni.
Leikskólabörn. Mynd úr safni. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Ekki er hægt að mæta boðuðum niðurskurði í leikskólum Reykjavíkur nema með beinni skerðingu á þjónustu við börn og fjölskyldur og með minni gæðum í leikskólastarfinu. Stjórnendur leikskóla í Reykjavík telja að nú sé komið inn að beini í skerðingu á fjármagni til leikskóla.

 Þetta kemur fram í ályktun frá Reykjavíkurdeild Félags stjórnenda leikskóla. Þar segir að stjórnendur séu uggandi yfir ákvörðun Reykjavíkurborgar að skera niður fjármagn næstu tvö árin til Skóla- og frístundasviðs. Nú þegar er boðuð hagræðingarkrafa sviðsins fyrir skólaárið 2016 um 670.000.000.

„Í kjölfar bankahrunsins 2008 var velt við hverjum steini í leikskólunum til að ná fram sparnaði. Það fjármagn hefur ekki nema að litlu leyti verið fært aftur til leikskólanna. Á síðastliðnu ári tóku leikskólar á sig auknar byrðar í rekstri, má þar nefna hluta af kostnaði sem fylgir sérkennslu og um leið niðurskurð á launalið,“ segir í ályktuninni. Kemur jafnframt fram að ákvörðun borgarráðs „að leikskólar taki með sér halla frá árinu 2015 yfir á árið 2016“ hafi komið stjórnendum í opna skjöldu á sama tíma og niðurskurður er boðaður.

„Við teljum að nú sé komið inn að beini í skerðingu á fjármagni til leikskóla sem ekki er hægt að mæta nema með beinni skerðingu á þjónustu við börn og fjölskyldur og með minni gæðum í leikskólastarfinu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert