Keppt verður í svokölluðum tölvutætingi í Hörpu á morgun en keppnin er hluti af opinni dagskrá UTmessunnar. Í tölvutætingi fá þátttakendur safn af tölvuhlutum sem þeir eiga að setja saman í starfhæfa tölvu og koma henni í gang. Sá þátttakandi sem er fyrstur til að kveikja á tölvunni vinnur.
Fyrir keppninni standa fyrirtækið Promennt og /sys/tur, sem er félag kvenna innan tölvunarfræðideildar Háskólans í Reykjavík. Sigurlaug Guðrún Jóhannsdóttir formaður /sys/tra segir í samtali við mbl.is að töluverð aðsókn hafi verið í keppnina í fyrra.
Gert var ráð fyrir að það tæki keppendur um 20 til 30 mínútur að setja tölvuna sína saman. Annað kom á daginn.
„Einhver snillingur kom og kláraði þetta á tveimur mínútum. Hann var væntanlega einhver atvinnumaður og ég er hrædd um að hinir keppendurnir hafi ekki veitt honum mikla samkeppni.“
Það kann að koma einhverjum á óvart að samsetning tölva er ekki kennd í tölvunarfræðináminu. Tölvunarfræði hefur þannig verið sögð snúast jafnmikið um tölvur og stjörnufræði snýst um sjónauka.
„Við lærum náttúrulega um þetta allt í skólanum, hvaða hlutverki hver partur gegnir og hvernig hann vinnur, en maður er kannski ekki mikið að snerta á þessu,“ segir Sigurlaug.
Keppnin er opin öllum á aldrinum 15 til 25 ára og hefst klukkan 15 í Norðurljósum. Til klukkan 14 verður hægt að skrá sig til leiks í básum Promennt og /sys/tra. Klukkan 14 verður svo dregið úr potti þar sem í ljós kemur hverjir fjórir fái að taka þátt.
Skjáir vísa út til áhorfenda svo þeir geti fylgst með og hvatt sitt fólk áfram og séð „live“ hver vinnur. Til mikils er að vinna en sigurvegarinn hlýtur gjafabréf frá Promennt á námskeið í tölvuviðgerðum að verðmæti 139.000 kr.
Sigurlaug segir að sífellt fleiri stelpur sæki um í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík.
„Mín tilfinning er sú að það sé að verða vitundarvakning um nauðsyn þess að auka hlut kvenna í upplýsingatækni. Bæði skólar og fyrirtæki virðast hafa mikinn áhuga á að fjölga konum, enda eru margir kostir fólgnir í því. Eftir því sem umræðan verður meiri og fleiri fyrirmyndir koma fram, þá held ég að náum að laga þann kynjahalla sem óneitanlega er í faginu í dag.
Konur eru nú um fjórðungur nemenda í tölvunarfræði við HR en aðeins fyrir nokkrum árum var hlutfallið meira en helmingi minna. Sigurlaug segir jákvæðar breytingar vera að eiga sér stað
„Það er okkar markmið í /sys/trum, að fá konur til að líta á þetta fag sem raunverulegan og eðlilegan valkost. Við viljum líka hvetja fleiri konur til að sækja um störf í þessum geira. Ég hef fulla trú á því að þetta sé að breytast til betri vegar.“
Á bás /sys/tra í Norðurljósum verður hægt að fikta í tölvum og fylgihlutum, tæta og setja saman. Leiðbeinendur verða á básnum til að fræða gesti um vélbúnað tölvunnar og aðstoða við fiktið.
Allir eru velkomnir á UTmessuna en dagskrá hennar er tvíþætt. Í dag fer fram fagráðstefna og á morgun opnar sýning fyrir alla fjölskylduna. Þá opnar tæknigeirinn upp á gátt og býður almenningi að koma og sjá það helsta sem er að gerast í tæknigeiranum dag.