Endurupptökunefnd á von á frekari gögnum á næstunni frá Magnúsi Guðmundssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg, varðandi endurupptöku á Al Thani-málinu.
Þess vegna hefur nefndin ekki enn úrskurðað í máli hans.
Stutt er síðan nefndin hafnaði beiðnum Hreiðars Más Sigurðssonar og Sigurðar Einarssonar um að málið verði endurupptekið í Hæstarétti Íslands.
Magnús var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi í Hæstarétti fyrir rúmu einu ári síðan. Hreiðar Már var dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi, Ólafur Ólafsson í fjögurra og hálfs árs fangelsi og Sigurður Einarsson í fjögurra ára fangelsi.