Nokkur fjöldi ábendinga hefur borist lögreglu um ferðir mannsins sem grunaður er um kynferðisbrot gegn konu í Móabarði á mánudagsmorgun. Þetta segir Árni Þór Sigmundsson yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Í samtali við mbl.is segir Árni að ábendingarnar hafi enn ekki leitt til handtöku mannsins.
mbl.is hefur heimildir fyrir því að maðurinn hafi villt á sér heimildir með því að hafa sagst vera á vegum veitufyrirtækis og að hann þyrfti að lesa af mælum. Þannig hafi hann komist inn til konunnar og brotið á henni.
Frétt mbl.is: Tengist kynferðisbroti í Hafnarfirði
Árni segir að haft hafi verið samband við veitufyrirtæki sem þjónusta Hafnarfjörð. „Það er búið að kanna þann möguleika en ekkert nýtt hefur komið í ljós. Nú verður haldið áfram að vinna úr vísbendingum auk þess sem við leitum hugsanlegra gagna.“
Ekki er vitað til þess að maðurinn hafi haft til að bera einkenni veitufyrirtækis eða framvísað skilríkjum í þá veru.
Lögregla lýsti eftir upplýsingum um ferðir mannsins á miðvikudag. Þar segir að hann sé um 180 sm á hæð og fölleitur og hafi verið dökkklæddur, með svarta húfu og svarta hanska. Er maðurinn talinn vera á aldrinum 35 – 45 ára.
Þeir sem geta veitt upplýsingar um manninn og ferðir hans eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu á skrifstofutíma í síma 444 1000, en upplýsingum má einnig koma á framfæri á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.