Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn héraðssaksóknara á umfangsmiklu peningamisferli. Vísir greinir frá þessu.
Ólafur Hauksson, héraðssaksóknari, staðfestir í samtali við mbl.is að maðurinn hafi verið handtekinn á mánudaginn þegar hann kom til skýrslutöku sem verjandi annars manns sem handtekinn var í málinu. Var maðurinn í kjölfarið úrskurðaður í gæsluvarðhald til föstudagsins, en það eru sömu tímamörku og gæsluvarðhald annarra sakborninga í málinu nær til.
Samkvæmt heimildum mbl.is er maðurinn grunaður um saknæmt athæfi í tengslum við málið, en ekki er víst hvort um sé að ræða hlutdeild eða hylmingu í tengslum við meintan peningaþvott.
Öll fjögur eru íslenskir ríkisborgarar en ólíkt hinum þremur sem sitja í gæsluvarðhaldi á einn hinna fjögurra sem sæta gæsluvarðhaldi að baki langan sakaferil, bæði fyrir kynferðisbrot og fjársvik.
Líkt og fram kom á mbl.is á mánudag voru tveir karlmenn og ein kona úrskurðuð í gæsluvarðhald í eina viku vegna gruns um misferli með peninga. Tengist málið peningaþvætti auk mögulegra annarra brota.
Rannsókn málsins er enn alveg opin, en heildarumfang brotanna nemur ríflega 50 milljónum króna. Ólafur Hauksson, héraðssaksóknari, staðfestir þetta í samtali við mbl.is, en Vísir sagði fyrst frá málinu.
Ólafur segist lítið geta tjáð sig um málið að svo stöddu, en staðfestir að um íslenska ríkisborgara sé að ræða. Þá sé málið með erlenda tengingu og gæsluvarðhaldskrafan hafi verið byggð á fleiri þáttum en peningaþvætti.
Segir hann málið hafa komið upp í vikunni eftir ábendingu frá fjármálastofnun og eftir greiningarvinnu hjá embættinu hafi verið farið í handtökur.