FÍB, Félag íslenskra bifreiðaeigenda, hefur sent Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra áskorun um að grípa tafarlaust til aðgerða til að stöðva yfirvofandi gripdeildir tryggingafélaga úr sjóðum sem eru í eigu viðskiptavina þeirra.
„Þrjú tryggingafélög hafa kynnt fyrirætlanir um samtals 8,5 milljarða króna arðgreiðslur á næstu dögum. Fjármunina á að taka úr bótasjóðum sem tryggingafélögin hafa safnað með uppsprengdum iðgjöldum af ofáætluðum tjónum,“ segir í yfirlýsingu frá félaginu.
Segir félagið Fjármálaeftirlitið hafa lagt blessun sína yfir að eigendur tryggingafélaga tæmi bótasjóðina og stingi þeim í eigin vasa. Eftirlitið vanræki skyldur sínar við almenning og hugsi eingöngu um haf fjármálafyrirtækja og fjárfesta, því verði að breyta.
„FÍB bendir á að FME hafi ríkar heimildir til að hlutast til um fjármál og rekstur tryggingafélaganna. FME geti skipað þeim að endurgreiða tryggingatökum eign þeirra í bótasjóðunum eða nota fjármunina til að lækka iðgjöld næstu árin,“ segir í yfirlýsingunni.
„FÍB bendir jafnframt á að ef FME ætlar að láta þessa sjálftöku afskiptalausa, þá yrði það í annað sinn á einum áratug sem stofnunin horfir aðgerðalaus á eigendur tryggingafélaga tæma bótasjóði sem þeir eiga ekki.“