Ríkissaksóknari hefur áfrýjað dómi héraðsdóms í Chesterfield-málinu svokallaða sem einnig hefur verið nefnt CLN-málið. Í lok janúar á þessu ári sýknaði héraðsdómur alla ákærðu í málinu, þá Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformann Kaupþings, og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg.
Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari staðfestir í samtali við mbl.is að sýknudómi yfir öllum þremur hafi verið áfrýjað. Féll dómur í málinu 26. janúar og er frestur til að áfrýja málinu því liðinn.
Þrímenningarnir voru ákærðir fyrir lán til Chesterfield United Inc., Partridge Management Group S.A. og eignarhaldsfélaga þeirra, samanlagt 510 milljónir evra haustið 2008. Það jafngilti nærri 70 milljörðum króna miðað við gengi evru 7. október 2008. Sérstakur saksóknari telur að féð sé allt tapað Kaupþingi.
Þar sem Hreiðar og Magnús hafa þegar fyllt refsiramma fyrir auðgunarbrot, upp á sex ár, gerði saksóknari í málinu kröfu um að þeim yrði gerður refsiauki. Samkvæmt lögum er slíkt hægt samkvæmt 72. grein almennra hegningarlag ef um ítrekuð brot er að ræða.
Dómurinn tók aftur á móti ekki undir málflutning saksóknara í málinu og sýknaði ákærðu. Segir í niðurstöðu dómsins að málið byggist á því að lán hafi verið veitt án trygginga. „Ekki er að sjá að þessu mikilvæga atriði hafi verið gefinn sérstakur gaumur í rannsókn málsins,“ segir í dómnum. Þá er heldur ekki tekið undir með ákæruvaldinu að stjórnendurnir hafi stefnt fé bankans í verulega hættu. „Ber þegar af þeirri ástæðu að sýkna alla ákærðu af þessum sakargiftum,“ segir um sakargiftir í tveimur af fjórum ákæruliðum.
Chesterfield-málið er það síðasta sem er í gangi gegn fyrrum stjórnendum Kaupþings, en áður hefur verið dæmt í Al-thani málinu á báðum dómstigum. Þá er beðið að Hæstiréttur taki fyrir markaðsmisnotkunarmál Kaupþings og Marple-málið svokallaða.