Reykjavíkurborg hefur hafnað umsókn um að opna veitingastað á jarðhæð Lækjargötu 2 en þar stóð til að opna veitingastað bandarísku keðjunnar Hard Rock. Í greinargerð umhverfis- og skipulagssviðs kemur fram að hlutfall veitinga- og skemmtistaða á svæðinu er nú þegar yfir 50%. Er þó bent á að vinna sé hafin við almenna endurskoðun á starfsemiskvótum í miðborginni.
Það var Nútíminn sem greindi frá málinu í gær.
Í greinargerð umhverfis- og skipulagssviðs kemur fram að á svæðinu sé hlutfall veitinga- og skemmtistaða á svæðinu 53%, sem er yfir 50% viðmiðinu.
„Það er því ekki hægt að heimila fleiri veitingastaði á jarðhæð götuhliða á umræddu svæði,“ segir í greinargerðinni.
Í lok desember var greint frá því á mbl.is að bókaversluninni Iðu í húsinu yrði lokað og veitingastaðurinn Hard Rock kæmi þar inn í staðinn. Iða var með óuppsegjanlegan leigusamning til næstu sex ára í húsinu og þurfti Hard Rock því að kaupa rekstur verslunarinnar.
Hard Rock hafði lengi sýnt mikinn áhuga á að opna aftur á Íslandi og fyrir nokkru tryggði fjárfestirinn og einn eigenda Domino's Pizza, Birgir Þór Bieltvedt, sér leyfi fyrir staðnum hér á landi. Staðurinn var áður í Kringlunni en var lokað árið 2005.