Karlmaður á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur á grundvelli rannsóknahagsmuna. Var hann handtekinn í gær í tengslum við eldsvoðann á Grettisgötu 87 síðastliðið mánudagskvöld.
Þetta staðfestir Jóhann Karl Þórisson aðstoðaryfirlögregluþjónn í samtali við mbl.is.
Aðspurður segir hann lögreglumenn hafa þekkt manninn þegar farið var yfir upptökur úr öryggismyndavélum í nágrenninu.
Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu lauk rannsókn á vettvangi í dag og hefur afhent vátryggingafélögum vettvanginn. Verið er að vinna úr gögnum sem safnað var í morgun.