Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er í fullum gangi vegna stórbrunans við Grettisgötu 87 í fyrrakvöld.
Vegna hættu á að þak hússins myndi hrynja að slökkvistarfi loknu í gær getur rannsókn í brunarústunum ekki hafist af krafti fyrr en í dag.
Íkveikja er ekki útilokuð eða aðrar orsakir, á meðan ekki hefur tekist að kanna rústirnar nánar, að því er fram kemur í umfjöllun um brunann í Morgunblaðinu í dag.