Útlit er fyrir að Svandís Sigurgeirsdóttir verði ekki með hreiður á hólmanum á Bakkatjörn í ár. Björn Ingvarsson hefur undanfarið fylgst með ferðum hennar við Reykjavíkurtjörn og í samtali við mbl.is segir hann að einnig hafi sést til nýs pars við hólmann í Bakkatjörn, sem hingað til hefur hýst Svandísi og hennar maka.
„Mér sýnist sem nýtt par sé þar að kanna málin og að Svandís sé jafnvel flutt til Reykjavíkur,“ segir Björn og bætir við að hann búist við að til tíðinda dragi í vikunni, þar sem hreiðurgerð í hólmanum hafi jafnan hafist í byrjun aprílmánaðar.
Svandís varð landsfræg árið 1994 en sagan segir að hún hafi tryggt stöðu meirihlutans í bæjarstjórn Seltjarnarness í kosningunum það vor. Forsagan er sú að Sigurgeir Sigurðsson þáverandi bæjarstjóri á Seltjarnarnesi lét búa til hólma einn í Bakkatjörn.
Segir um Sigurgeir að stöku sinnum hafi samstarfsfélagar hans, ekki síst fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn, þótt sem hann mætti ráðfæra sig meira við aðra. Þannig hafi því einmitt verið háttað þegar hann lét gera hólmann í miðri Bakkatjörn.
„Sú ráðagerð virtist fara fram hjá mörgum því ýmsir ráku upp stór augu þegar hólminn reis úr vatni einn sólbjartan morgun,“ segir í tilkynningu frá Seltjarnarnesbæ árið 2004.
„Fjölmargir „sérfræðingar“ voru þess fullvissir að þessi aðgerð myndi hafa verulega slæm áhrif á fuglalíf í Bakkatjörn og jafnvel ganga að því dauðu. Sigurgeir var ósammála og hafði fyrir því traustar heimildir. Um skeið virtist sem hólminn myndi kosta sjálfstæðismenn á Seltjarnarnesi meirihlutann enda um grafalvarlegt mál að ræða.
En einmitt þegar hæst lét kom álft ein, óvenju glæsileg, fljúgandi úr austurátt og nam land í hólmanum ásamt maka sínum. Segja má að gagnrýnisraddir hafi hljóðnað þegar sundfitin snertu grasið í hinum nýgerða hólma. Álftin var samstundis nefnd Svandís Sigurgeirsdóttir og hefur ásamt maka og nokkrum tugum afkvæma skráð lögheimili á Seltjarnarnesi.“
Eins og áður sagði hefur nú sést til Svandísar spóka sig við Reykjavíkurtjörn og eru því blikur á lofti fyrir þá sem ekki vilja missa þennan glæsta Seltirning úr bæjarfélaginu.