Katrín nýtur mest trausts

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, í Alþingishúsinu í gær.
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, í Alþingishúsinu í gær. mbl.is/Styrmir Kári

Í könnun MMR sögðust flestir bera mikið traust til Katrínar Jakobsdóttur, formanns Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs (59,2%) og Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands (54,5%). Einungis 10,1% sögðust bera mikið traust til Sigmundar Davíðs, forsætisráðherra, en 21,7% kváðust bera mikið traust til Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra. Könnunin var framkvæmd í gær og fyrradag.

Traust til Sigmundar Davíðs, forsætisráðherra er í sögulegu lágmarki, en traust til Katrínar Jakobsdóttur og Ólafs Ragnars Grímssonar hefur aukist töluvert frá síðustu mælingu í apríl 2015. Traust til Dags B. Eggertssonar borgarstjóra hefur einnig dvínað töluvert frá síðustu mælingu.

81,0% svarenda sögðust bera lítið traust til Sigmundar Davíðs, sem er aukning um nær 18% síðan í apríl 2015. Þeim sem kváðust bera lítið traust til Dags B. Eggertssonar fjölgaði einnig töluvert frá síðustu mælingu, eða um rúmlega 10%. 

Þegar traust til fyrrnefndra aðila er skoðað eftir stuðningi við stjórnmálaflokka kemur í ljós að Ólafur Ragnar Grímsson nýtur nær algers trausts meðal stuðningsmanna Framsóknarflokksins, en stuðningsmenn Samfylkingarinnar, Vinstri-grænna og Bjartrar framtíðar eru ólíklegastir til að bera mikið traust til Ólafs Ragnars. Sigmundur Davíð nýtur mikils trausts meðal stuðningsmanna Framsóknarflokksins, en mjög lítils trausts meðal stuðningsmanna annarra flokka. 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 969 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 4. apríl til 5. apríl 2016
Eldri kannanir sama efnis:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert