Spyr um samskiptin við kröfuhafa

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingar.
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingar. mbl.is/Styrmir Kári

Formaður Samfylkingarinnar, Árni Páll Árnason, hefur lagt fram skriflega fyrirspurn í sex liðum á Alþingi til Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra þar sem meðal annars er spurt um það hvaða reglur hafi gilt um þá sem komu að samningum við kröfuhafa gömlu bankanna og meðferð slitabúa þeirra. Vill hann fá það greint eftir hópum og nefndum.

„Hvernig var þess gætt að þeir sem komu að málinu af hálfu stjórnvalda væru ekki fjárhagslega tengdir eða hagsmunatengdir kröfuhöfum, bæði sjálfir og í gegnum maka eða venslamenn? Hvernig var háttað meðferð gagna og trúnaðarupplýsinga? Hvert var regluverkið, hver var regluvörður og hvaða hlutverki gegndi hann? Hvert voru fyrirmyndir sóttar að því fyrirkomulagi umgjarðar um trúnað og upplýsingaskyldu um hagsmunatengsl sem valið var? Hverjir veittu ráðgjöf um leiðina, umbúnað og umgjörð?“ segir ennfremur í fyrirspurninni.

Árni Páll spyr ennfremur að því hvaða „reglur hafi gilt um fjármála- og efnahagsráðherra, trúnaðarskyldu og innherjastöðu hans og upplýsingaskyldu um hagsmuni? Hvaða reglur giltu að þessu leyti um forsætisráðherra og ef þær voru ekki hinar sömu, hvers vegna ekki?“ Þá vill hann vita hver hafi verið „raunveruleg formleg aðkoma forsætisráðherra að þeim samningum sem gerðir voru við kröfuhafa“, hvaða trúnaðarupplýsingar hann hafi fengið frá fjármála- og efnahagsráðherra eða starfsmönnum fjármála- og efnahagsráðuneytisins og með hvaða
skilmálum.

„Hvaða stjórnsýsluákvörðunum kom hann [fyrrverandi forsætisráðherra] að og á hvaða tíma? Hver var aðkoma beinna undirmanna hans og hvernig voru þeir bundnir trúnaði eða látnir fylgja reglum um innherjaskráningu?“ Árni spyr einnig að því hvað ráðherranefnd um efnahagsmál hafi gert í samningum við kröfuhafa. „Hvaða ákvarðanir voru teknar á hennar fundum og hvað af því sem nefndin ræddi varðaði þessi málefni?“ Ennfremur hvort allar fundargerðir ráðherranefndarinnar væru aðgengilegar og þá hvar.

Síðasta spurningin er svohljóðandi: „Hvað gerði stýrihópur um afnám hafta, hvaða ákvarðanir voru þar teknar, hvaða samráð fór þar fram og hverjir sátu fundi hans? Sat forsætisráðherra einhverja fundi stýrihópsins og ef svo var ekki, hvaða undirmenn forsætisráðherra?“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert