Mun meiri stuðningur er við byggingu nýs spítala á Vífilsstöðum heldur en við Hringbraut, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Viðskiptablaðsins.
Um 50% aðspurðra vilja sjá spítalann rísa á Vífilsstöðum á meðan 39,6% vilja að hann verði áfram við Hringbraut.
Aðrar staðsetningar virðast ekki vera inni í myndinni hjá almenningi. 1,7% vilja að hann verði við Keldnaholt og 1,3% í Fossvoginum.
Um 7,5% vilja að hann rísi á einhverjum öðrum stað en þessum fjórum.