Aðkoma ríkisins að kaupum á jörðinni Felli sem tilheyrir Jökulsárlóni var rædd á ríkisstjórnarfundi í gær.
„Það má ráða af lögum að ríkið hafi forkaupsrétt að þessari eign og á þeirri forsendu erum við sammála um að fylgjast vel með málinu og sjá hvað verður úr upphafi þess og hvers konar tilboð munu berast í jörðina,“ segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra í samtali við Morgunblaðið.
Samkvæmt náttúruverndarlögum á ríkissjóður að hafa forkaupsrétt að jörðum og öðrum landareignum sem eru að hluta eða að öllu leyti á náttúruminjaskrá, að þeim aðilum frágengnum sem veittur er forkaupsréttur með jarðalögum, að þvíæ er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Mortgunblaðinu í dag.