Innanlandsflug liggur niðri

Allt innanlandsflug liggur niðri vegna veðurs. Næst verður athugað hvort …
Allt innanlandsflug liggur niðri vegna veðurs. Næst verður athugað hvort hægt sé að fljúga klukkan 17 í dag. Skapti Hallgrímsson

Allt innanlandsflug liggur nú niðri vegna veðurs, að undanskildu flugi Flugfélagsins Ernis til Vestmannaeyja. Fyrr í dag var flugi til og frá Ísafirði aflýst en fyrir stuttu fengu farþegar sem áttu bókað flug til og frá Akureyri og Egilsstöðum síðdegis sms frá Flugfélagi Íslands þar sem kemur fram að orðið sé ófært.

Næsta áætlaða flug Flugfélags Íslands til Akureyrar eru klukkan 17, en þá verður athugað hvort hægt verði að fljúga. 

Áætlunarflug Ernis til Húsavíkur og Bíldudals féll niður í dag en flug til Hornafjarðar og Vestmannaeyja er samkvæmt áætlun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert